VBS fjárfestingarbanki hefur gengið frá samkomulagi við ríkissjóð um lán til 7 ára vegna skuldbindinga bankans við Seðlabanka Íslands. Ekki er gefið upp á hvaða kjörum þetta lán er veitt, hvorki frá VBS né fjármálaráðuneytinu.
„Með samningnum er tryggt að ríkissjóður og þar með skattgreiðendur, fái að fullu greitt skuldbindingar þær sem VBS fjárfestingarbanki tókst á hendur vegna endurhverfra viðskipta við Seðlabankann,“ segir í tilkynningu frá bankanum.
„ Auk þessa mun samningurinn tryggja langtímafjármögnun á meginhluta skulda VBS fjárfestingarbanka, og þar með renna styrkum stoðum undir framtíð félagsins, hagsmuni viðskiptavina, hluthafa og starfsfólks.
Lánasamningurinn inniheldur skilyrði um eiginfjár- og lausafjárstöðu auk annarra skilyrða og veitir hinu opinbera ríkari aðgengi að upplýsingum er varða rekstur og rekstrarhæfi bankans,“ segir þar jafnframt.
Mbl.is hefur ekki fengið upplýsingar á hvaða kjörum viðkomandi lán er veitt. Fjármálaráðuneytið vill ekki upplýsa um það. Ekki hefur heldur fengist upplýsingar um lán sem ríkissjóður veitti Saga Capital í síðustu viku. Þar var einnig um að ræða skuld vegna veðlána bankans við Seðlabanka Íslands.