Gengi krónunnar hefur veikst um 0,75% það sem af er degi og er gengisvísitalan nú komin yfir tvö hundruð stig að nýju, er 200,90 stig. Bandaríkjadalur er 114,10 krónur, evran 154,56 krónur, pundið 167,47 krónur og danska krónan 20,741 króna, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.