Gengi krónunnar veiktist um 0,75% í dag og er gengisvísitalan 200,90 stig. Gengi Bandaríkjadals er 114,16 krónur, pundið 168,15 krónur, danska krónan 20,732 krónur og evran 154,45 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka. Ekki var mikil velta á gjaldeyrismarkaði í dag.