Gengisvísitala krónunnar hefur lækkað um 0,24% það sem af er degi og stendur gengisvísitalan nú í 210 stigum. Gengi Bandaríkjadals er 119,45 krónur, pundið 177,95 krónur, evran er 161,37 krónur og danska krónan er 21,668 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.