Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að lágmarks verð í yfirtökutilboði BBR ehf. til hluthafa Exista hf. skuli lækkað og vera að lágmarki 0,02 krónur á hlut úr 4,62 krónum. Að sögn Fjármálaeftirlitsins voru skuldir Exista verulega umfram eignir þess í desember.
BBR ehf. er í eigu Lýðs Guðmundssonar og Ágústs Guðmundssonar. Það skráði sig fyrir 50 milljörðum hluta í Exista í byrjun desember og urðu bræðurnir í kjölfarið yfirtökuskyldir þar sem félög þeim tengd áttu þá samtals 56,4 milljarða hluti í Exista eða sem nam 87,8% af heildarhlutafé.
Á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins kemur fram, að það hafi í byrjun janúar fengið beiðni um að beita lagaheimild og lækka lágmarks verð í yfirtökutilboði BBR 4,62 krónum á hlut niður í 0,02 krónur á hlut, eða verðið, sem BBR greiddi fyrir hvern hlut í hlutafjárhækkun Exista 8. desember.
Fjármálaeftirlitið segir, að aðstæður Exista hafi augljóslega breyst til hins verra í kjölfar hruns Kaupþings banka hf. o.fl. Þá var hlutafé félagsins nær fimmfaldað þann 8. desember þannig að eldri hlutir og verðmæti þeirra þynntust verulega. Þar sem lokað hafi verið fyrir viðskipti með fjármálagerninga félagsins frá 2. október og þar til tilboðsskylda stofnaðist, hafi opinbert markaðsvirði bréfanna ekki lækkað þrátt fyrir þessar miklu breytingar. Síðasta markaðsverð hlutabréfanna áður en tilboðsskylda stofnaðist endurspegli ekki rétt verðmæti félagsins eins og það var þegar tilboðsskylda stofnaðist, þann 8. desember 2008. Það sé því mat Fjármálaeftirlitsins að sérstakar kringumstæður réttlæti að lágmarksverð í yfirtökutilboði í Exista verði lækkað.
Þá hefur Fjármálaeftirlitið fengið sérfræðinga PriceWaterhouseCoopers til þess að framkvæma fyrir sína hönd takmarkað verðmat á Exista eins og félagið var þann 4. desember 2008. Verðmatið lá fyrir þann 17. mars og sé niðurstaðan að skuldir að skuldir félagsins hafi verið verulega umfram eignir þess.
Þá hafi Fjármálaeftirlitið horft til verðþróunar með hlutabréf félagsins dagana 9. til 22. desember, þ.e. frá því opnað var að nýju fyrir viðskipti með hlutabréfin í Kauphöllinni og þar til þau voru afskráð, en lítil viðskipti og mikil óvissa hafi komið í veg fyrir eðlilega verðmyndun á þessu tímabili.