Gengi krónunnar hefur ekki breyst það sem af er degi og er gengisvísitalan 220 stig líkt og í gær en gengi krónunnar hefur lækkað umtalsvert undanfarna daga. Bandaríkjadalur er 126,96 krónur, evran 168,11 krónur, pundið 186,78 krónur og danska krónan 22,561 króna, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.