Hráolíuverð lækkar í Asíu

Það gengur oft á ýmsu á NYMEX markaðnum í New …
Það gengur oft á ýmsu á NYMEX markaðnum í New York þar sem viðskipti með hráolíu fara fram. AP

Verð á hráolíu til afhendingar í maí lækkaði í viðskiptum í Asíu í dag eftir páskahátíðina. Hráolíuverð hækkaði talsvert í síðustu viðskiptum fyrir páska. Verð á hráolíu í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í New York lækkaði um 99 sent í 51,25 dali tunnan. Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði um 57 sent í 53,49 dali tunnan.

Síðasti viðskiptadagur með Norðursjávarolíu til afhendingar í maí verður á miðvikudag á olíumarkaði í Lundúnum. Engin viðskipti hafa verið á hráolíumarkaði frá því á skírdag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK