Vilhjálmur Bjarnason, hluthafi í Exista, ætlar að krefjast þess að verð hlutabréfa í félaginu verði metið. Bakkavararbræður hafa gert yfirtökutilboð þar sem þeir bjóðast til að kaupa hlutinn á 0,02 krónur en samkvæmt því er Exista 1,3 milljarða króna virði.
Fram kom í fréttum Sjónvarpsins, að Vilhjálmur hyggist hafna tilboðinu og það sama eigi við um marga aðra hluthafa. Kostnaðurinn við yfirtökuna sé meiri en yfirtakan sjálf.