Tugir breskra sveitarstjórna gætu fengið óvæntar greiðslur frá skilanefnd Heritable Bank, dótturfélags Landsbankans. Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að sparifjáreigendur geti átt von á að minnsta kosti 70% af innistæðum sínum, að því er kemur fram í breska blaðinu Sunday Times.
Fram hefur komið að 123 breskar sveitarstjórnir áttu yfir 920 milljónir punda, jafnvirði 175 milljarða króna, á reikningum hjá Landsbankanum, Glitni og Kaupþingi. Óttast hefur verið að þetta væri tapað fé.
Sunday Times hefur eftir Paul Carter, formanni bæjarráðs Kent, sem átti nærri 50 milljónir punda á íslenskum bankareikningum, að fyrstu greiðslur frá skilanefnd Heritable gætu borist innan nokkurra mánaða.
Carter segir, að skiptastjórar frá Ernst & Young hafi lagt fram ýtarlega skýrslu þar sem komi fram að hægt verði að greiða 70-80 pens fyrir hvert pund á innlánsreikningum. Einnig komi fram í skýrslunni að greiðslan gæti orðið hærri ef markaðsaðstæður batna.
„Ástæðan fyrir því að við vorum með svona mikið lausafé inni á bankareikningum var sú, að við seldum mikið af hlutabréfum fyrir 18 mánuðum þegar verið var í hámarki. Við höfum verið gagnrýndir fyrir að leggja féð inn í íslenska banka en nú er útlit fyrir að við hefðum tapað mun meira fé ef við hefðum haldið fénu bundnu í hlutabréfum," segir Carter við blaðið