Gengi íslensku krónunnar veiktist um 0,9% í viðskiptum dagsins í dag, samkvæmt upplýsingum af gjaldeyrisborði Íslandsbanka. Endaði gengisvísitalan í 223 stigum. Gengi Bandaríkjadals er nú 130,28 krónur, punds 191,35 krónur, evru 168,98 krónur og dönsku krónunnar 22,68 krónur.