Verð á hráolíu hefur lækkað í Asíu í morgun og hefur verðið á tunnunni haldist undir fimmtíu dölum. Nemur lækkun dagsins 32 sentum og er tunnan nú á 49,30 dali. Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði um 43 sent og er 49,68 dalir tunnan. Telja sérfræðingar að verð á hráolíu eigi eftir að haldast fremur lágt áfram vegna efnahagskreppunnar.