Verðbólgan nú 11,9%

Vísi­tala neyslu­verðs í apríl hækkaði um 0,45% frá fyrra mánuði, sam­kvæmt út­reikn­ing­um Hag­stof­unn­ar. Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis hækkaði hún um 0,84% frá mars.

Síðustu tólf mánuði hef­ur vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 11,9% en vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis um 15,6%. Mest varð 12 mánaða verðbólga 18,6% í janú­ar. Und­an­farna þrjá mánuði hef­ur vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 0,4% sem jafn­gild­ir 1,4% verðbólgu á ári en 9,4% fyr­ir vísi­töl­una án hús­næðis.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu Hag­stof­unn­ar, að  verð á bens­íni og díselol­íu hækkaði um 8,2% (vísi­tölu­áhrif 0,33%) og verð á föt­um og skóm um 3,2% (0,19%).

Kostnaður vegna eig­in hús­næðis lækkaði um 1,6% (-0,23%). Þar af voru áhrif af lækk­un markaðsverðs -0,19% og -0,04% af lækk­un raun­vaxta. Verð á mat og drykkjar­vöru lækkaði um 0,7% (-0,10%).


mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK