Spá því að stýrivextir lækki í 14%

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

Greining Íslandsbanka spáir því að stýrivextir Seðlabanka Íslands verði lækkaðir úr 15,5% í 14% á fimmtudag þegar vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður kynnt. Nefndin hefur nú á skömmum tíma eða frá því í mars lækkað vexti úr 18,0% niður í 15,5% og síðast um 1,5 prósentur þann 8. apríl síðastliðinn.

Í Morgunkorni Íslandsbanka kemur fram að talsvert hefur dregið úr verðbólgu frá síðustu vaxtaákvörðun nefndarinnar. Mælist verðbólgan nú 11,9% en var 15,2% þegar vaxtaákvörðunin í mars var tekin.

„Verðbólguvæntingar eru litlar og vænta stjórnendur fyrirtækja þess svo dæmi séu tekið að vísitala neysluverðs muni lækka um 2,0% litið til næstu tólf mánaða en samkvæmt verðbólguspá okkar ætti að verðbólgan að hjaðna hratt á næstu mánuðum og vera hverfandi lítil eftir ár.

Dregið hefur enn frekar úr eftirspurn á vinnumarkaði og atvinnulausum fjölgað. Sýnir vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar 7,1% atvinnuleysi á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 2,3% atvinnuleysi á sama ársfjórðungi í fyrra. Þá virðist launaþrýstingur óverulegur en hækkun launavísitölu Hagstofunnar var sú minnsta á fyrsta ársfjórðungi frá því í þjóðarsáttinni í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar. Vísbendingar eru um að enn hafi dregið úr innlendri eftirspurn og eru væntingar neytenda til efnahags og atvinnulífs litlar þó þær hafi hækkað aðeins undanfarið," að því er segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

Fyrir síðustu vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar í apríl hafði krónan lækkað allnokkuð á stuttum tíma eða um 9% frá vaxtaákvörðun nefndarinnar í mars. Taldi nefndin þá að veik staða krónunnar stafaði af tímabundnum þáttum svo sem tiltölulega miklum árstíðabundnum vaxtagreiðslum af skuldabréfum erlendra aðila í íslenskum krónum.

„Síðan hefur krónan lækkað enn frekar eða um nær 2% og spurning hver afstaða nefndarinnar er nú. Líklegt er að hún telji núverandi stýrivaxtastig ekki ráðandi fyrir þessa þróun krónunnar innan þess haftafyrirkomulags sem er á gjaldeyrismarkaði og hafi þannig ekki umtalsverðar áhyggjur af því að frekari vaxtalækkun myndi veikja krónuna frekar," samkvæmt Morgunkorni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK