Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, sagði í fyrirspurnartíma í breska þinginu í gær, að það væri forgangsmál í uppgjöri vegna innlána á reikningum íslensku bankanna í Bretlandi, að Íslendingar stæðu við skuldbindingar sínar um innlánstryggingar.
„Það er forgangsmál að íslensk stjórnvöld borgi. Þess vegna eigum við í samningum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og önnur stjórnvöld um hversu hratt Ísland geti endurgreitt það tap, sem landið ber ábyrgð á," sagði Brown.
Forsætisráðherrann var sakaður um að standa í vegi fyrir því, að Christie sjúkrahúsið í Manchester fengi endurgreiddar þær 6 milljónir punda, sem það átti inni á íslenskum reikningum.
Brown sagðist hafa áhyggjur af Christie’s en bætti við að margir aðrir, bæði einstaklingar ogt stofnanir, hefðu orðið fyrir búsifjum þegar íslenska fjármálaeftirlitið greip inn í rekstur íslensku bankanna og skoða yrði mál sjúkrahússins í því ljósi. Hann féllst þó á að skoða það mál sérstaklega.