Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og nefndarmaður í viðskiptanefnd, lagði í dag fram fyrirspurn um skýrslur Deloitte og Oliver Wyman um eignasafn nýju bankanna. Fyrirspurninni er beint til viðskiptaráðherra, en Fjármálaeftirlitið (FME), sem réð Deloitte og Wyman til verkefnisins, heyrir undir það ráðuneyti.
Líkt og mbl.is greindi frá fyrr í dag var átti að fjalla um umræddar skýrslur á fundi viðskiptanefndar í morgun. Hins vegar kom í ljós að einu upplýsingar sem þingmennirnir áttu að fá um skýrslurnar voru þær að þeir myndu ekki fá neinar upplýsingar um innihald þeirra.
Fyrirspurn Eyglóar er eftirfarandi:
1. Hvert er verðmat (verðbil) Deloitte/Oliver Wyman á fasteignalánum bankanna til heimila (sem hlutfall af höfuðstól)?
2. Hvert er verðmat (verðbil) Deloitte/Oliver Wyman á lánum til fyrirtækja (sem hlutfall af höfuðstól)?
3. Hvernig hefur verðmat á eignum bankanna þróast síðan í október 2008? Hefur það lækkað og þá hversu mikið?