Hlutabréf hækkuðu í kauphöllinni á Wall Street í kvöld en fjárfestar telja sig sjá frekari vísbendingar um að samdráttarskeiðið sé á enda. Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 1,15% og er 8500 stig. Nasdaq vísitalan hækkaði um 1,29% og er 1774 stig. Gengi bréfa deCODE lækkaði hins vegar um 3,9% og er 37 sent.