Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans um 1 prósentu, úr 13% í 12%, samkvæmt tilkynningu á vef bankans.
Vextir daglána lækka einnig um 1 prósentu en aðrir vextir Seðlabankans eru óbreyttir. Gerð verður nánari grein fyrir ákvörðun nefndarinnar á blaðamannafundi klukkan 11.
Síðast breytti peningastefnunefnd Seðlabankans vöxtum fyrir tæpum mánuði en þeir voru þá lækkaðir um 2,5 prósentur, úr 15,5% í 13%.
Forsvarsmenn bæði Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hafa síðustu daga sagt, að veruleg vaxtalækkun væri forsenda þess að hægt yrði að ná samkomulagi um stöðugleikasáttmála.
Ákvörðun peningastefnunefndar bankans í dag um stýrivexti mun væntanlega hafa mikið að segja um framhald viðræðna aðila vinnumarkaðarins.
Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sögðu hins vegar á fréttamannafundi nýlega að þeir teldu að horfa þyrfti vandlega á stöðu krónunnar og horfur í efnahagsmálum áður en tekin yrði ákvörðun um stýrivaxtalækkun. Varhugavert geti verið að lækka vextina við núverandi aðstæður, en ákvörðunin væri þó í höndum Seðlabankans.
Á síðasta vaxtaákvörðunardegi peningastefnunefndar, þann 7. maí síðastliðinn, sagði Svein Harald Øygard seðlabankastjóri, að stýrivextir myndu lækka umtalsvert í byrjun júní, ef ákveðnar forsendur verði fyrir hendi. Forsendurnar væru meðal annars þær að gengi krónunnar sé stöðugt, mikið aðhald sé í ríkisrekstrinum og að samningar um Icesave-skuldbindingar Landsbankans lægju fyrir. Þetta hefur ekki að öllu leyti gengið eftir.