Egla, félag Ólafs Ólafssonar, á 7,7 milljarða krónu kröfu á Kjalar, móðurfélags Eglu sem einnig er í eigu Ólafs. Kröfuhafar Eglu samþykktu í morgun nauðasamning félagsins. Í rökstuðningi með frumvarpi til nauðasamnings kom fram að annars gæti krafan á Kjalar tapast. Þau rök þykja haldlítil.
Tuttugu og fimm kröfuhafar Eglu höfðu mælt með því að nauðasamningurinn yrði lagður fram og samþykktur að því er fram kom í frétt Morgunblaðsins 7. apríl síðastliðinn.
Skuldir Eglu eru rúmir 8,3 milljarðar króna, á meðan áætlað verðmæti eigna félagsins nemur um 1,2 milljörðum króna, eða ca. 15% af skuldum.Í röksemdum frumvarps til nauðasamninga kemur fram að ef Egla yrði gjaldþrota væru verulegar líkur á því að Kjalar yrði það einnig. Við það myndu aukast líkur á að skaðabótakröfum Kjalars á hendur gömlu bönkunum Kaupþingi og Glitni vegna óuppgerðra gjaldmiðlaskiptasamninga yrði ekki fylgt eftir.
Lögmenn sem Morgunblaðið ræddi við sögðu þessar röksemdir undarlegar. Þrotabú Kjalars myndi taka við umræddum kröfum og það væri skylda skiptastjóra þrotabúsins að fylgja slíkum kröfum eftir. Því séu þau rök haldlítil að minni líkur séu á því að hægt verði að fylgja eftir bótakröfum við gjaldþrot Kjalars.
Í beiðni um heimild til nauðasamningsumleitana sem birt var í Kauphöllinni 2. apríl síðastliðinn kom eftirfarandi fram: