Gengisvísitala íslensku krónunnar hækkaði um 0,9% í viðskiptum á gjaldeyrismarkaði í dag og er lokagildi hennar 232,3 stig. Veiktist krónan sem því nemur, en hún hefur veiktst nokkuð að undanförnu. Samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka voru viðskipti á markaði nokkur í dag.