Spá kreppu allt til 2015

Aldrei hefur heimsbyggðinni tekist jafn illa upp við að skapa …
Aldrei hefur heimsbyggðinni tekist jafn illa upp við að skapa ný störf eins og á árinu 2009. Morgunblaðið/ Ómar

Á ársþingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) í Genf sem nú stendur yfir er m.a. fjallað um það hvort efnahagur heimsins fari að rétta úr kútnum eða hvort áframhaldandi þrengingar séu í spilunum, segir frétt frá Samtökum Atvinnulífsins.

Í umræðum í nefnd um viðbrögð við kreppunni hefur komið fram það álit að hægur viðsnúningur hefjist á árinu 2010 sem þó sé háður því að fjármálakerfi heimsins fari að virka sem skyldi og fjármagnsflutningar verði með eðlilegum hætti.

Svartsýnustu spár gera ráð fyrir því að störfum fari ekki að fjölga að ráði fyrr en í fyrsta lagi árið 2015.

Aldrei hefur heimsbyggðinni tekist jafn illa upp við að skapa ný störf eins og á árinu 2009, segir í fréttinni.

Í áliti nefndarinnar segir að skuldsett lönd geti ekki brugðist við kreppunni með viðeigandi hætti, þ.e. að auka útgjöld og lækka skatta - það sé hreinlega ekki í boði.

ILO hefur sett upp mismunandi dæmi þar sem reynt er að sjá fyrir fjölgun starfa á næstu árum m.v. ólíkar forsendur. Bjartsýnustu spár gera ráð fyrir að atvinnustigi ársins 2007 verði náð 2013 en þær svartsýnustu spá 6 erfiðum árum framundan á vinnumarkaði eða jafnvel lengur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK