Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 26 milljörðum króna fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 en 22,8 milljörðum á sama tímabili 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 3,1 milljarð eða 13,7% milli ára.
Að sögn Hagstofunnar var aflaverðmæti botnfisks í lok mars orðið 20,9 milljarðar á árinu, en það er aukning um 16,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 18 milljörðum.
Verðmæti þorskafla var um 11 milljarðar og jókst um 13,9% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam rúmum 4 milljörðum og dróst saman um 4,3% milli ára. Verðmæti karfaaflans nam rúmum 3 milljörðum, sem er rúm 85% aukning frá fyrstu þremur mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans dróst saman um 12,8% milli ára eða í tæpan 1,1 milljarð.
Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 1,7 milljörðum króna í janúar til mars 2009, en það er 90,6% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst hins vegar saman um 17,1% milli ára og nam 3,2 milljörðum.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 11,4 milljörðum króna fyrstu þrjá mánuði ársins og jókst um 19,5% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 6,1% milli ára og var um 4 milljarðar króna. Aflaverðmæti sjófrystingar var 6,4 milljarðar en var 6,2 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 3,2 milljörðum, en það samsvarar 23,2% aukningu miðað við tímabilið janúar til mars 2008.