Sjálfkjörið verður í stjórn Eimskipafélagsins á aðalfundi 30. júní en framboðsfrestur rann út í gær.
Gunnar M. Bjorg, flugvélakaupandi frá Liechtenstein, gengur úr stjórninni og
inn kemur Pétur Guðmundarson lögfræðingur.
Að öðru leyti verður stjórnin óbreytt. Aðrir stjórnarmenn tóku sæti
þegar Björgólfur Guðmundsson var aðaleigandi félagsins. Grettir, félag hans um eignina, er í gjaldþrotaskiptum.
Sindri Sindrason verður áfram stjórnarformaður, aðrir stjórnarmenn eru: Friðrik Jóhannsson, Orri Hauksson og Tómas Ottó Hansson.