„Mér finnst þetta mjög sérstakur dómur,“ segir Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Baldurs Guðnasonar, fyrrverandi forstjóra Eimskipafélagins í samtali við mbl.is. „Það er afskaplega harður dómur að halda því fram að Baldur Guðnason hafi svikið út launahækkun úr Eimskipafélagi Íslands.“
Eimskip var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknað af kröfu Baldurs Guðnasonar, fyrrverandi forstjóra þess, um greiðslu launa í tvö ár, allt til loka febrúar 2010. Byggir sýknan á því að Baldur hafi misnotað aðstöðu sína og því beri að ógilda starflokasamning við hann.
Eftir stendur, segir Sigurður, ef ekkert verður að gert, að ráðningasamningur Baldurs með lægri laun í uppsagnarfresti er enn þá gildur.
Sigurði þykir það sérstakt að dæma að Baldur hafi beitt stjórnarformann Eimskipafélagsins og lögmann þess svikum, varðandi þau launakjör sem tilgreind eru í viðaukanum við ráðningarsamninginn.
„Það lá fyrir hjá félaginu gögn um það að það ætti að hækka laun starfsmanna. Það var búið að ganga frá hækkun á launum undirmanna. Og stjórnarformaður félagsins hafði samþykkt þetta og forstjóri átti auðvitað að treysta því að stjórnarformaðurinn hafði bakland sitt í lagi,“ segir hann.
Aðspurður hvort málinu verði áfrýjað til hæstaréttar, segist Sigurður eiga eftir að skoða það. „Ég á eftir að ræða það við stjórn Eimskipafélagsins, hvort þeir ætli ekki að virða þann launasamning sem þeir þá skrifuðu undir við Baldur á sínum tíma,“ svarar hann. Þ.e.a.s., að launahækkuninni yrði einungis vikið til hliðar, en launasamningurinn standi enn eftir.
„Ef félagið á efni á því, en mér sýnist að það sé búið að skjóta undan öllum eignum undan þar yfir í nýtt félag,“ segir Sigurður og bætir við: „Enn eitt kennitöluflakkið á Íslandi.“