Gengi krónunnar hefur lækkað í dag og í gær og er gengisvísitalan nú 233,84 stig. Gengi krónunnar lækkaði um 1% í gær en það sem af er degi hefur það lækkað um 0,4%. Bandaríkjadalur er nú 129,5 krónur, pundið 208,17 krónur, evran er 180,2 krónur og danska krónan 24,2 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.