Umtalsvert hefur dregið úr krónueign erlendra aðila hér á landi frá ársbyrjun eða um 70 milljarða króna. Þess ber að geta að langtímaeignir hafa aukist lítillega en aðallega hafa skammtímaeignir þó minnkað. Þetta kemur fram í Hagsjá, fréttabréfi hagfræðideildar Landsbankans.
Skammtímaeignir hafa minnkað úr 330 milljörðum króna í 260 milljarða. Fram kemur í Hagsjá að ljóst sé að verulega hafi dregið úr krónueign útlendinga, þó svo að mikillar óvissu gæti í þessu mati. Að mati Landsbankans virðist fremur vera að „óþolinmóða" fjármagnið hafi dregist saman, en ekki það „þolinmóða".
Bráðabirgðamat Seðlabankans á krónueignum erlendra aðila frá því í maí á þessu ári bendir til að um 40% heildareigna þeirra í verðbréfum og innstæðum í krónum séu í eigu aðila sem hafa verið flokkaðir sem „óþolinmóðir" erlendir fjárfestar. En það eru þeir fjárfestar sem vilja komast út úr landinu sem fyrst.