Einungis 30 kaupsamningum þinglýst

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 10. júlí til og með 16. júlí 2009 var 30. Þar af voru 24 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.231 milljónir króna og meðalupphæð á samning 41 milljónir króna.

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Það voru 2 samningar um eignir í fjölbýli. Heildarveltan var 18 milljónir króna og meðalupphæð á samning 9 milljónir króna.

Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli og 1 samningur um sérbýli. Heildarveltan var 129 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,6 milljónir króna.

Á sama tíma var engum kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu, að því er fram kemur á vef Fasteignaskrár Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK