Engin viðskipti hafa verið á millibankamarkaði í morgun en þrátt fyrir það hefur gengisvísitala krónunnar breyst lítillega vegna hreyfinga milli Bandaríkjadals og evru. Evran er nú 180,16 krónur en Bandaríkjadalur er 126,57 krónur. Breska pundið er 209,07 krónur og danska krónan 24,194 krónur. Gengisvísitalan er 232,79 stig, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.