Engin viðskipti voru með gjaldeyri á millibankamarkaði í dag en gengisvísitala krónunnar stendur í 232,42 stigum. Bandaríkjadalur er 126,15 krónur, pundið 208,15 krónur, evran er 179,3 krónur og danska krónan er 24,08 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.