Gengi krónunnar veiktist um 1,19% í dag og er gengisvísitalan nú 235,09 stig. Gengi Bandaríkjadals er 127,92 krónur, evran er 181,06 krónur, pundið er 210,05 krónur og danska krónan er 24,319 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.