Útlendir ferðamenn eru alsælir á Íslandi enda staða íslensku krónunnar þannig að ódýrt er fyrir útlendinga að kaupa inn á Íslandi. Meðal annars má sjá japanska ferðamenn, sem áður voru sjaldséðir á Íslandi, borða á íslenskum veitingastöðum og kaupa fatnað í verslunum. Í grein sem birtist í Telegraph um helgina segir að ekkert sé ódýrt á Íslandi en verðlagið sé nú eðlilegt vegna falls krónunnar gagnvart evru.
Í greininni er rætt við Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sem segir að allt sé á réttri leið á Íslandi og þjóðin sé að komast betur í gegnum hörmungarnar heldur en áður var talið.
Andri Snær Magnason, rithöfundur tekur í svipaðan streng og segir að allt sé með svipuðu sniði og áður og þeir sem hafi misst vinnu í bönkunum hafi fengið nýtt starf.
Greinarhöfundur fer yfir gengi krónunnar, lán fólks í erlendri mynt, setningu hryðjuverkalaganna og atvinnuleysi á Íslandi í samanburði við nokkur lönd í Evrópu. Segir hann að Íslendingar hafi í ótta sínum sótt um aðild að Evrópusambandinu. En hann telur að þegar aðildarviðræðum verði lokið þá verði erfiðleikar að baki á Íslandi og lítill hagur í því að sækja um. Eins furðar greinarhöfundur sig á því að alþjóðleg matsfyrirtæki íhugi að setja íslensk ríkisbréf í ruslflokk.