Karl Wernersson hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttaflutnings Stöðvar 2 og Vísis 27. júlí 2009 undir yfirskriftinni „Milljarðar í skattaskjól“. Ætlar Karl að leita til dómstóla vegna fréttanna sem hann telur að brjóti gegn lögum.
„Yfirlýsing Karls Wernerssonar vegna fréttaflutnings Stöðvar 2 og Vísis 27. júlí 2009 undir yfirskriftinni „Milljarðar í skattaskjól“Í umfjöllun Stöðvar 2 og Vísis hefur því verið haldið fram að ég hafi verið viðriðinn umfangsmikla fjármagnsflutninga til annarra landa sem sagðir voru hafa farið fram í kjölfar þess að íslenska ríkið tók yfir Glitni á haustmánuðum síðasta árs.
Ég hafna með öllu efni umræddrar fréttar sem á við engin rök að styðjast að því er sjálfan mig og Milestone ehf. varðar. Virðist sem fréttin sé alger uppspuni frá rótum, til þess eins fallinn að kasta rýrð á nafn og orðspor mitt og félaga í minni eigu. Með umfjöllun sinni hafa sameinaðar fréttastofur Stöðvar 2 og Vísis vegið alvarlega að heiðri mínum og sterk rök hníga til þess að umfjöllunin varði við ærumeiðingarkafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Vegna þessa mun ég leita eftir atbeina dómstóla við að fá ummæli um mig í fyrrgreindum fréttum dæmd dauð og ómerk og sækja þá sem að fréttaflutningnum stóðu til saka.
Í gær gaf ég fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis kost á því að leiðrétta þegar í stað framangreindar fréttir sem birtar hafa verið á vegum Stöðvar 2 og Vísis á jafnáberandi stað og þær voru settar fram á, en þeirri beiðni hefur ekki verið sinnt af hálfu fréttastofanna