Gengi krónunnar styrktist um 0,7% í dag en gengisvísitalan stendur í 234,5 stigum. Upphafsgildi hennar var 236,30 stig. Bandaríkjadalur er 126,62 krónur, pundið er 211,5 krónur, danska krónan er 24,24 krónur og evran er 180,5 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.