HULDA Dóra Styrmisdóttir, stjórnarformaður Nýja Kaupþings, svaraði ekki símtölum frá Morgunblaðinu í gær. Pressan sagði frá því að hún hefði sent starfsmönnum bankans tölvupóst og sagt að stjórnin hefði ekki átt þátt í ákvörðun bankastjóra sl. laugardag um að setja lögbann á fréttaflutning RÚV um vinnuskjal um háar lánveitingar til viðskiptavina Kaupþings,sem lekið var á Wikileaks.org.