Tap á rekstri deCODE nam 12,1 milljón dala á öðrum ársfjórðungi ársins miðað við 17,6 milljóna dala tap á öðrum ársfjórðungi árið 2008. Tap fyrstu sex mánuði ársins nemur 24,3 milljónum dala samanborið við 43,6 milljónir dala á sama tíma í fyrra.
Tekjur á ársfjórðungnum námu 3,5 milljónum dala samanborið við 9
milljónir dala á öðrum fjórðungi síðasta árs. Á fyrstu sex mánuðum
ársins námu tekjur félagsins 7,6 milljónir dala samanborið við 18,1
milljón í fyrra.