Sandgerðisbær mun hafa samþykkt að selja 0,32% hlut sinn í HS Orku til Magma Energy Sweden AB fyrir samtals 125 milljónir króna.
Þetta kemur fram á fréttavef Víkurfrétta. Þar segir að bæjarráðið hafi samþykkt að taka tilboði Magma Energy Sweden sem hljóðaði upp á 6,31 krónur fyrir hvern hlut.
Bæjarstjóra hefur verið falið að ganga frá málinu.