Langmesta verðbólgan á EES-svæðinu

Verðbólgan í júlí var 16,5 prósent hér á landi og …
Verðbólgan í júlí var 16,5 prósent hér á landi og er sú langhæsta meðal ríkja Evrópska efnahagssvæðisins. mbl.is/Sverrir

Verðbólgan í júlí var 16,5 prósent hér á landi og er sú langhæsta meðal ríkja Evrópska efnahagssvæðisins samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Evrópusambandsins hefur birt, að því er fram kemur í Morgunkorni, fréttabréfi greiningar Íslandsbanka. Næst Íslandi kemst Rúmenía með 5 prósent verðbólgu en þar á eftir kemur Ungverjaland með 4,9 prósent verðbólgu og Pólland en þar er verðbólgan 4,5 prósent.  

Dregið hefur úr verðbólgu á EES svæðinu að undanförnu. Nú mælist hún 0,2 prósent en var 4,4 prósent fyrir ári. Verðhjöðnun er í fjórtán löndum innan svæðisins en umtalsverð fjölgun hefur verið undanfarið í löndum sem upplifa slíkt ástand. Mest er verðhjöðnunin á Írlandi -2,6 prósent en þar var 3,6 prósent verðbólga fyrir ári. Að meðaltali er verðbólgan nú 0,2 prósent meðal ríkja evru svæðisins og -0,7 prósent meðal ríkja ESB.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK