Verð á notuðum skipum hefur lækkað lækkað töluvert á umliðnum mánuðum. Segir í frétt danska viðskiptablaðsins að Börsen að verðið hafi lækkað það mikið að það jafnvel hægt að tala um brunaútsölu á skipum á alþjóðlegum markaði.
Sérfræðiingar á þessum markaði eru almennt þeirrar skoðunar að nú sé rétti tíminn til að kaupa skip, séu menn á þeim buxunum, að því er fram kemur í frétt Reuters-fréttastofunnar. Þannig séu dæmi um að verð á til að mynda fimm ára gömlum gámaskipum hafi fallið um allt að 65% á einu ári.