Lítil viðskipti hafa verið með bréf Össurar í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í morgun en fyrirtækið var skráð þar í dag. Velta með bréfin nemur 102 þúsund dönskum krónum og viðskiptin haf verið á genginu 5,60. Í Kauphöll Íslands hafa hins vegar verið viðskipti með bréf Össurar á genginu 6 í morgun.