Kreditkortavelta dregst saman um 17,2%

Kreditkort
Kreditkort AP

Heildarvelta kreditkorta í ágústmánuði var 23,7 milljarðar króna samanborið við 28,6 milljarða króna á sama tíma í fyrra og er þetta 17,2 % samdráttur milli ára, samkvæmt nýbirtum hagtölum Seðlabanka Íslands.

Heildarvelta kreditkorta dróst saman um 1,2 % í ágúst miðað við mánuðinn á undan.

Debetkortavelta var í ágúst 34,7 milljarðar króna og drógst saman um 3,8 % frá fyrri mánuði. Sé heildardebetkortavelta borin saman við sama tíma í fyrra hefur heildardebetkortaveltan dregist saman um 4,2 % milli ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka