Kröfuhafar Milestone hafa verið boðaðir á fund kl. 14 í dag til að kjósa um nauðasamninga félagsins. Frumvarp um rekstur félagsins og endurskipulagningu liggur fyrir fundinum til samþykktar eða synjunar. Um 60 kröfuhafar hafa rétt til að kjósa um frumvarpið.
Jóhannes Albert Sævarsson, lögmaður hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur, hefur verið umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum félagsins. Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Mileston heimild til að leita nauðasamninga við lánardrottna sína 24. júní síðastliðinn.