Seðlabankastjóri Bandaríkjanna, Bern Bernanke, sagði í dag, þriðjudag, að samdrátturinn í Bandaríkjunum væri núna „mjög líklega afstaðinn“ frá tæknilegu sjónarhorni en hagkerfið yrði áfram veikt í einhvern tíma. Í vitnisburði fyrir þingnefnd í breska þinginu gaf Mervyn King, Englandsbankastjóri, sömuleiðis í skyn að samdrátturinn þar væri að baki, þótt langur og grýttur vegur væri framundan.
Að sögn AFP-fréttastofunnar lét Bernanke orð sín falla á ráðstefnu í Washington og sagði hagkerfið líklega mundu vaxa á þriðja ársfjórðungi eftir niðursveiflu sem hófst seinni hluta árs 2007.
„Jafnvel þó samdrátturinn sé á þessu stigi mjög líklega afstaðinn frá tæknilegu sjónarhorni, þá verður hagkerfið mjög veikburða enn um sinn, þar sem fjöldi fólks telur starfsöryggi sitt og atvinnustig ekki eins og hann vildi að það væri,“ sagði seðlabankastjórinn. „Svo að það er áskorun fyrir okkur og stjórnmálamennina að gera enn betur.“
Bernanke var á ráðstefnu hjá Brooking stofnuninni um efnahagsmál í tilefni af því að ár var liðið frá falli Lehman Brothers bankanum sem hleypti fjármálaheiminum í uppnám og dýpkaði niðursveifluna til muna.
Nú ári síðar segir Bernanke að það sé eining um það meðal þeirra sem vinna við hagspár að á þessi stigi sé um efnahagsbata að ræða og vöxtur verði á þriðja ársfjórðungi og haldi áfram þegar 2010 renni upp.
Almenn skoðun hagspármanna sé þó að vaxtarhraðinn 2010 verði hóflegur, - minni en menn hefðu getað vænst með tilliti til þess hversu efnahagslægðin var djúp - vegna mótbyrs sem enn gætti.
Mervyn King Englandsbankastjóri sagði með sama hætti að það væru merki um að viðvarandi vöxtur hefði verið milli júlí og september. Segir í The Daily Telegraph að þetta sé í fyrsta sinn sem bankastjórinn láti að því liggja að samdrættinum í Bretlandi sem staðið hefur í um ár, sé að verða lokið þó að langur og grýttur vegur sé enn framundan.
Ummæli hans féllu í kjölfar þess að birst höfðu jákvæðar hagtölur, annars vegar um húsnæðisverð sé að styrkjast og verðbólga hafi ekki verið lægri í fimm ár.