Einn kaupandi stofnfjárbréfa í SPRON hefur haft samband við Hlyn Jónsson, formann skilanefndar, og fengið upplýsingar um það hver var seljandi bréfanna. Þetta staðfesti Hlynur í samtali við Morgunblaðið.
Þá hafa þrír kaupendur stofnbréfa sett sig í samband við Grím Sigurðsson hrl. og farið fram á að hann afli upplýsinga um seljendur.