Forstjóri olíufélagsins Total segir að hætta sé á olíuskorti eftir nokkur ár vegna þess að olíufélög haldi nú að sér höndum við fjárfestingar í olíuleit og vinnslu vegna fjármálakreppunnar.
„Ef við tökum ekki ákvarðanir nú verður þetta vandamál," sagði Christophe de Margerie í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. „Það verður of seint eftir tvö til þrjú ár."
„Það er nóg af olíu en ef ekki er fjárfest í vinnslu kemst olían ekki á markað. „Við þurfum að taka ákvarðanir nú vegna framleiðslu á árunum 2010-2015."
De Margerie sagði einnig að olíuverð muni líklega hækka í yfir 100 dali tunnan en það er nú um 70 dalir.