Lánshæfiseinkunn Íbúðalánasjóðs er óbreytt í Baa1 hjá alþjóðlega matsfyrirtækinu Moody's samkvæmt nýrri skýrslu. Einkunnin er jafnframt á neikvæðum horfum líkt og lánshæfismat ríkissjóðs en mikil tengsl eru á milli einkunna Íbúðalánasjóðs og ríkissjóðs sökum baktryggingar þess síðarnefnda á skuldum þess fyrrnefnda.
Moody's sér ekki miklar líkur á hækkun lánshæfiseinkunnar Íbúðalánasjóðs næsta kastið, að því er fram kemur í Hagsjá Landsbankans.
Hins vegar ráðist möguleg lækkun helst af þremur þáttum. Fyrir það fyrsta ef fjármálaumhverfi sjóðsins, svo sem fjármögnun og gæði eignasafnsins, súrnar mikið frá því sem þegar hefur orðið í kjölfar hruns viðskiptabankanna.
Í öðru lagi gæti einkunnin lækkað ef sérfræðingar Moody's telja áhættu aukast, sem gæti til að mynda gerst við yfirtöku sjóðsins á erlendum húsnæðislánum bankanna.
Að lokum mun lánshæfiseinkunn Íbúðalánasjóðs taka mið af einkunn ríkissjóðs hjá Moody's svo lengi sem hann er í eigu ríkissjóðs og með baktryggingu hans.