Flutningur íbúðalána hefur mætt mótstöðu

Íbúðalánasjóður
Íbúðalánasjóður Árni Sæberg

Stjórnvöld munu væntanlega fá frjálsari hendur til að samræma aðgerðir í þágu skuldsettra heimila ef íbúðalán bankanna verða færð yfir til Íbúðalánasjóðs. Þetta er líkast til ein af skýringunum á endurnýjuðum áhuga stjórnvalda á því að færa íbúðalánin, sem fyrst kom til álita fljótlega eftir bankahrunið síðastliðið haust og aftur um síðustu helgi. Eftir því sem næst verður komist er þetta þó einungis ein af fjölmörgum hugmyndum sem ráðherranefnd þriggja ráðherra og sérstök nefnd á þeirra vegum hefur verið að skoða, sem lið í lausn á skuldavandanum að undanförnu.

Forsvarsmenn bankanna hafa að því er næst verður komist tekið þessum hugmyndum misjafnlega og sumir verið lítt hrifnir. Óhætt er hins vegar að segja að margir bíði eftir niðurstöðum varðandi þessi mál, og þá helst eftir því að upplýst verði um frekari aðstoð við skuldsett heimili en nú þegar er í boði.

Flutningur á íbúðalánum bankanna til Íbúðalánasjóðs er auðvitað engin lausn á greiðsluvanda heimilanna. Frekari aðgerðir þurfa að koma til. Fyrir liggur að verði ekkert að gert muni vandi heimilanna magnast stórkostlega. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur sagt að aðstoð við skuldsett heimili verði meðal fyrstu mála sem lögð verði fram þegar Alþingi kemur saman í næsta mánuði. Hætt er við að þeir verði fyrir vonbrigðum sem hafa trúað því að hægt verði að fara í allsherjar niðurfellingu, eða leiðréttingu, á höfuðstól skulda.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK