Stærsti skuldabréfaflokkur ríkissjóðs sem útgefinn er í evrum hefur hækkað í verði á erlendum mörkuðum um helming frá byrjun marsmánaðar. Fyrir sjö mánuðum síðan fengust rúmlega 60 sent fyrir hverja evru nafnverðs þessara bréfa en í gær voru verðtilboð í þau nálægt 90 sentum á evru nafnverðs.
Greining Íslandsbanka segir í Morgunkorni sínu, að þessi verðbreyting jafngildi því að ávöxtunarkrafa bréfanna á eftirmarkaði hafi lækkað úr ríflega 22% niður í 7,7%. Um er að ræða 1 milljarðs evra útgáfu með gjalddaga í desember 2011 sem gefin var út í lok ársins 2006 í því skyni að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans.
Íslandsbanki segir, að þessi þróun evrubréfa ríkissjóðs sé til marks um að nokkuð hafi miðað áleiðis með að endurverkja trú á íslensku efnahagslífi frá áramótum, þótt minnkandi áhættufælni á heimsvísu spili vitanlega einnig stórt hlutverk. Þróun skuldatryggingarálags ríkissjóðs segi svipaða sögu, en 5 ára skuldatryggingarálag á ríkissjóð hafi lækkað úr 1050 punktum í upphafi mars niður í 365 punkta í gær.
Íslandsbanki segir, að þótt skuldatryggingarálag á heimsvísu hafi almennt farið lækkandi það sem af er ári sé lækkunin óvíða jafn mikil hlutfallslega og í tilfelli Íslands. Hins vegar verði að hafa í huga, að skuldatryggingarálag á Ísland er enn langhæst meðal Vestur-Evrópuríkja. Írland sé í öðru sæti með 135 punkta álag og Grikkland er í því þriðja með 123 punkta álag. Íslenska álagið sé meira í ætt við álag á skuldatryggingar sumra Austur-Evrópuríkja á borð við Lettland og Litháen, sem og skuldatryggingarálag Kasakstans. Þessi lönd eigi öll sammerkt að hafa fengið á sig harðan efnahagslegan skell og einnig hafigjaldmiðlar þeirra og fjármálakerfi átt undir högg að sækja.