Hagar semja við banka um endurfjármögnun

Merki Haga
Merki Haga

Hagar hf. hafa undirritað drög að samkomulagi við Nýja Kaupþing banka og NBI um endurfjármögnun félagsins með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki lánanefnda bankanna. Fjármögnunin mun tryggja að Hagar greiði skuldabréfaflokk félagsins á gjalddaga hans 19. október 2009.

Í fyrradag var ákveðið á aðalfundi Húsasmiðjunnar hf. að að færa hlutafé hennar niður í núll. Bókfært verðmæti hlutafjárins hjá Högum  hefur verið afskrifað. Að sögn forsvarsmanna Haga hefur afskriftin engin áhrif á endurgreiðsluhæfni félagsins á skráðum skuldabréfaflokki Haga, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK