Bandarísku hagfræðingarnir Elinor Ostrom og Oliver Williamson hljóta hagfræðiverðlaun Nóbels í ár fyrir starf sitt við greiningu á hagfræðilegri stjórnun. Ostrom er fyrsta konan, sem hlýtur þessi verðlaun en þau hafa verið veitt frá árinu 1969.
Í tilkynningu sænsku verðlaunanefndarinnar segir, að rannsóknir þeirra Elinor Ostrom og Oliver Williamson sýni, að hagfræðirannsóknir geti varpað ljósi á flestar tegundir félagslegra samtaka.
Ostrom starfar við háskólann í Indiana en Williamson við Berkeley háskóla í Kalíforníu.