Engin viðskipti hafa verið með gjaldeyri á millibankamarkaði í dag. Evran er 184,20 krónur en hækkun hennar skýrist af lækkun á gengi Bandaríkjadals gagnvart evru. Bandaríkjadalur er 124,75 krónur, pundið er 197,30 krónur, danska krónan er 24,74 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.