Vildu útskýra hegðun AGS fyrir Norðmönnum

Forsvarsmenn vogunarsjóðsins Boreas Capital segja, að tilgangur þeirra með því að taka þátt í fundum forsvarsmanna Framsóknarflokksins með norskum þingmönnum, hafi verið að  útskýra hvernig Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi hegðað sér gagnvart Íslendingum.

Í tilkynningu, sem Ragnar Þórisson og Frank Óskar Pitt hafa sent frá sér, „vegna óhróðurs í garð vogunarsjóðsins Boreas Capital hjá „blogglúðrasveit“ Samfylkingarinnar um helgina segja þeir m.a. að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi dregið lappirnar í lánveitingum vegna  Icesave, og veikt samningsstöðu Íslendinga gagnvart  Bretum og Hollendingum. Hafi sjóðnum tekist að sliga íslenskt atvinnulíf með því að halda stýrivöxtum í ógnarhæðum undanfarið ár.

„Við lögðum fram hugmynd að 50 milljarða NOK (1000 milljarða) lánalínu til Íslands sem gæti orðið til þess að losna við AGS úr landi. Þessi lína bæri lítinn kostnað eða 0,25% á ári og eingöngu myndum við greiða vexti (4% var lagt fram) af þeim fjárhæðum sem við myndum draga á línuna. Þessi lánalína  kæmi okkur Íslendingum á lappir, hækkaði lánshæfismat okkar og styrkti krónuna. Seðlabankar Íslands og Noregs gætu í kjölfarið unnið í samvinnu við að stýra okkur út úr þessu og keypt t.d. upp skuldabréf íslenska ríkisins með afföllum, greiða upp óhagstæð lán og taka ný og eða draga á línalínuna... Við lögðum til að við notuðum 1/3 í að laga fjárlagahallann, 1/3 í erlendar skuldir á næstu þremur árum og 1/3 í að styrkja gjaldeyrisforðann.  Samkvæmt okkar útreikningum þá þurfum við kannski að draga 1/3 til 2/3 af 1000 milljarða lánalínu þar sem hún virkar á mörgun stöðum sem svokölluð stríðskjöldur.

Það  var að beiðni  norsku þingmannanna að við skrifum minnisblað um ofangreind atriði og er það í vinnslu. Minnisblaðið verður sent frá okkur á næstu dögum. Það var sérstaklega áhugavert hvernig norsku hægri og vinstri flokkarnir voru hvað ákafastir í að láta skoða þennan möguleika sem fyrst. Eftir að hafa hitt alla átta stjórmálaflokka Noregs komumst við að því að Norðmenn kalla Íslendinga bræður, en Norðmenn eru yfirleitt kallaðir frændur af Íslendingum," segir m.a. í tilkynningu þeirra Ragnars og Franks. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK